Færsluflokkur: Bloggar

Sýndarmennska

Er ekki betra að skaffa matvæli og klæðnað fyrir fátæka heldur en dýrkunarhöll sem hefur engin raunveruleg áhrif... ég bara spyr. Hann vill væntanlega halda þrælastéttinni frá einkaklúbbinum sínum.
mbl.is Páfi vill kirkju fyrir hina fátæku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er hellingur í boði

Slíta Þjóðkirkjuna af spena ríkisins og þá er meira en nóg af peningum í boði. Ég vil borga hjúkrunarfræðingum meiri laun og ég vil alls ekki borga prestum laun yfir höfuð. Fólk þarf að fara ná sambandi við raunveruleikan og þakka þeim sem hjálpa okkur í raun en ekki sýna eintóman hroka og þakka bara ósýnilega vini sínum. Trúarbrögð eiga heima í hausnum á ykkur en ekki í opinberum stofnunum sem þykjast veita einhverja þjónustu fyrir okurgjald.
mbl.is Stjórnvöld geta ekki boðið meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er búið að neita mér íslenskum ríkisborgararétt?!

"Íslendingar trúa á guð"... er ég þá ekki íslendingur?

Trúmál hafa verið hið versta vandamál í mannkynssögunni og það bitnar alltaf á fólki eins og mér, sem vilja ekkert með trúmál hafa. Er ég þá bara réttindalaus? Mun það fólk sem hafa sameiginlegar skoðanir og ég hafa ekkert að segja í íslensku samfélagi? Ef svo er þá vil ég ekkert búa á íslandi, þá vil ég ekkert vera íslenskur ríkisborgari, ef enginn er að hugsa um mína hagsmuni. Viðbjóðsleg mistúlkun á fornaldar stjörnufræði er ekki eitthvað sem ég vil að dreifist inní mitt samfélag eins og plága sem sýkir fólk af fáfræði. Ég vil fá að vita hvaðan þessar tölur koma, því ég efast um að það sé eitthvað að marka, tölur hafa enga meiningu nema eitthvað raunverulegt sé bundið við það. Ekki trúa öllu sem þú heyrir, það er hollt að efast því meirihlutinn sem þú heyrir eða lest í dag hefur enga raunverulega meiningu. Ég er búinn að þegja og vera tillitsamur alltof lengi. Þar sem það er engin tillitsemi gagnvart mér frá trúuðu fólki þá segi ég þetta... Fólk, ég er trúlaus og lifi mjög vel þannig... fyrir utan fordómafullt trúað fólk sýkt af mikilmennsku sem er sífellt að troða sínum skoðunum inná sameiginlegt svæði þjóðfélagsins. Hvað varð um mannréttindastefnuna? Fer það bara eftir því hvort ríkið græði á því fjárhagslega? Eða er það alltaf meirihlutinn ræður? Ef meirihluti íslendinga er karlkyns, verður þá kvenkynshlutinn af launalausum þrælum? Af hverju er eitt í lagi en annað ekki þrátt fyrir að bæði er bundið hópaskipti. Órökrétt, ótillitsamt og fáfræðilegt að segja að íslendingar trúa á guð punktur.


mbl.is Íslendingar trúa á Guð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morðóði peningurinn

Ég ætla ekki að ásaka neinn ákveðinn án sönnunargagna. En rökrétt er að hér er á ferð keðjuverkun græðginnar og hvaða leið er betri en að segja að það sé skortur á vöru til að keyra verðið upp og neyða neytendur til að kaupa í örvæntingu þeirra. Rafmagnsbílar hefðu getað verið í þróun í 100 ár alveg eins og þráðlaust rafmagn hefði getað verið í þróun í 100 ár, en hvað stoppaði það... nú valdamenn vildu ekki missa getuna að rukka fyrir "nauðsynja"auðlindir... af sjálfsögðu. Ég segi að það þarf að fara taka völdin af þessum valdamönnum því þeir ekkert betri en neinn annar og hafa engan raunverulegan rétt til þess að taka ákvarðanir fyrir alla hina.  Ég vil taka skýrt fram að jörðin er ekkert að fara skorta olíu neitt á næstunni alveg eins og sólinn er ekkert að fara að slokkna á næstunni. Sá sem segir það er að ljúga að þér, en það er svosem ekkert nýtt.  Fyrst peningurinn er ennþá það eina sem hefur eitthvað að segja... hver er til í að styrkja mig í rafmagnsbílaþróun samtengt þróun þráðlaust rafmagns?
mbl.is Enn hækkar eldsneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur á það inni að vera reitt

Almenningur hefur verið svikinn, það er logið að almenningi á hverjum degi og almenningur var leiddur í sína eigin gildru. Þessi mótun sem kristin trúfélög þykist hafa gert til af hinu góða er lítið að sjá og er vægast sagt lítils virði, enda eru elstu og stærstu trúfélög heimsins skelfileg mistúlkun á fornaldar stjörnufræði. Fyrirgefning er ekki eitthvað sem á bara að gefa frá sér eins og tyggjó, ef fyrirgefning er ekki áunning hver er þá tilgangurinn með því. Kirkjufólk þarf að fara að átta sig á því að greind almennings hefur hækkað svo að segja orð af handahófi til að hljóma gáfulega virkar ekki eins vel lengur. Einfaldlega sagt, fólk yfir höfuð, hættið þessu kjaftæði og farið að gera eitthvað af viti.
mbl.is Biskup fjallar um reiðina í þjóðlífinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öll skuld er ekki sanngjörn.

Sannleikurinn í þessu öllu saman er að Ísland mun aldrei geta borgað þessa skuld, því Ísland mun alltaf skulda eitthvað... alla sína tíð, með þessu kerfi sem er í gangi í dag. Svona stór skuld virkar eingöngu sem merki um veikleika og Ísland verður þá auðveld bráð efnahagsleigumorðingja, sem vinna fyrir erlend fyrirtæki sem koma með iðnað til landsins sem á að vera frábær lausn fyrir þjóðina, en endar með því að steypa landinu í stóra skuld og neyðir okkur til að selja afurð okkar hræódýrt og eyðileggur þar með efnahag landsins. Hvar stöndum við þá? Á landamærum þriðja heimsins? Ég sé ekki betur en að stjórnmálamenn í valdi vilji einmitt þetta, annars hefði ekki komið svona margar heimskulegar ákvarðanir í röð. Gagnleysi stjórnmálamanna hefur aldrei verið eins skýr og nú.

Við þurfum að stefna á að vinna fyrir mannkynið, en ekki peninga.

-> Venus verkefnið


mbl.is „Risaáfangi í endurreisn Íslands“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerfi sem hrynur aftur og aftur

Ég er einn af þeim sem fannst þessi lánagleði í kringum 2007 vera rosalega skuggaleg á þeim tíma. Peningaforðinn er eins og lón, ef einhver tekur pening þá hlýtur annar að tapa pening... Ef bankinn lánar öllum og býst við því að fá peningin tilbaka með vöxtum, hvaðan koma þessir vextir þá?... Einfalda svarið við því að þessi peningur er ekki til. Þetta er skuld ofan á skuld ofan á skuld o.s.frv. Blaðra sem springur reglulega með grimmdarlegum afleiðingum. Þið kannski spyrjið hvernig getur svona órökrétt kerfi virkað... það virkar einmitt ekki, þeir fáu sem hafa dauðahald á stærsta hluta fjármagns í heiminum einfaldlega svindla. ...og ég bara spyr, finnst fólki þetta vera bara allt í lagi?

 

Fyrir þá sem vilja skilja betur hvað er að gerast í heiminum mæli ég með því að horfa á þessar 2 myndir (löglega frítt á netinu):

Zeitgeist -> http://vimeo.com/13726978

Zeitgeist Addendum -> http://vimeo.com/13770061


mbl.is Greiða Icesave með 3% vöxtum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Einar Þórir Árnason

Höfundur

Einar Þórir Árnason
Einar Þórir Árnason
Rafvirki, hljóðtæknir, tónlistamaður, áhugamaður um tækni og vísindi.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband